Stutt ágrip af sögu félagsins
Garðræktarfélags Reykhverfinga sem er einn stærsti tómataframleiðandi landsins er starfrækt á Hveravöllum í Reykjahverfi S-Þing. Félagið á sér langa sögu en á aðalfundi þess í september s.l var þess minnst að hundrað ár eru liðin síðan stofnfundur þess var haldinn. Það var sunnudaginn 17. júlí 1904 á Reykjum sem 23 menn komu saman til þess að stofna félagið, flestir ábúendur í Reykjahverfi. Þetta er eitt af elstu hlutafélögum landsins en starfsemi hefur verið hjá fyrirtækinu samfellt í heila öld.
Núverandi framkvæmdarstjóri er Páll Ólafsson, faðir Ólafur Atlason, afi Atli Baldvinsson og langafi Baldvin Friðlaugsson.
Gróðurhúsin á Hveravöllum eru um 6900 fermetrar og þar af eru sex stór hús sem eru 800 fermetrar hvert. Á þessu ári nemur heildarframleiðslan allt að 190 tonnum og þar af eru tómatar um 160 tonn, gúrkur 16 tonn og paprikur 8 tonn. Þá er framleitt mikið af sumarblómum sem seld eru á vorin.
Yfir sumarið eru 16 heil störf í fyrirtækinu en segja má að um 9 ársverk sé að ræða fyrir utan verktakavinnu við ýmsar framkvæmdir sem keypt er þar fyrir utan.
Segja má að fyrirtækið hafi verið landnemi á sínu sviði og varð það að mæta ýmsum örðugleikum í uppvexti sínum.
Fyrstu ár sín stóð félagið nær einungis að kartöflurækt við hverina og 1910 var uppskeran um 370 tunnur, en Þingeyingum þótti mikið hagræði á þeim tíma að geta fengið þessa vöru keypta á heimaslóðum. Sótti þá fólk úr nærsveitum vinnu við hverina haust og vor. Auk kartöfluræktarinnar hafði félagið dálitla rófnarækt, túnrækt og engjaheyskap. Um tíma var heyöflun allstór liður í rekstrinum.
>> Lesa meira
|